Sport

Snæfell enn í öðru sæti

Snæfell vann KFÍ 93-80 í Intersport-deild karla í körfuknattleik á Ísafirði í gærkvöldi. Michael Ames skoraði 21 stig fyrir Snæfell en Joshua Helm var langstigahæstur hjá KFÍ, en hann skoraði 37 stig og tók 16 fráköst. Snæfell er í öðru sæti deildarinnar með 26 stig, tveimur á eftir Keflavík sem hefur forystu en KFÍ er á botninum með 2 stig. Fátt virðist nú geta komið í veg fyrir að KR falli úr efstu deild kvenna. Stúdínur sigruðu KR-konur með 79 stigum gegn 66 í gærkvöldi. Angel Mason skoraði 20 stig fyrir ÍS en Jerica Watson bar ægishjálm yfir aðra í KR-liðinu og skoraði 34 stig. ÍS er í 3. sæti deildarinnar með 20 stig en KR í sjötta og neðsta sæti með aðeins 4 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×