Matur

Íslenskt þema á Tveimur fiskum

"Við erum með sérstakan matseðil með íslensku þema í tilefni þess að aðrir veitingastaðir eru núna með útlendinga í eldhúsinu," segir Gissur Guðmundsson matreiðslumeistari og eigandi veitingahússins Tveir fiskar.

Gissur segist þó fagna komu erlendu kokkana enda séu þeir krydd í tilveruna. "Það er alltaf ánægjulegt að fá erlenda matreiðslumenn í heimsókn en við viljum bara láta vita að íslenskir matreiðslumenn eru líka á heimsmælikvarða. Við erum líka með svo mikið af erlendum gestum sem vilja íslenskan mat," segir Gissur en bætir við að Íslendingar séu alltaf að verða duglegri við að fara út að borða.

"Sem betur fer eru þeir komnir á bragðið á þessi gæði sem við höfum."

Lestu meira í tímaritinu Magasín sem fylgir DV í dag.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.