Innlent

Nýju framsóknarfélögin fá aðild

Landsstjórn Framsóknarflokksins ákvað í gær að veita tveimur nýstofnuðum framsóknarfélögum úr Kópavogi aðild að flokknum. Bæði Halldór Ásgrímsson formaður og Guðni Ágústsson varaformaður voru fylgjandi inntöku nýju félaganna en tillaga hafði komið upp um að fresta málinu fram yfir landsþing flokksins sem hefst í dag. Siv Friðleifsdóttir, ritari flokksins, og Una María Óskarsdóttir, formaður Landssambands framsóknarkvenna, sátu báðar fundinn en þurftu báðar að fara áður en honum lauk, vegna annarra erinda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×