Sport

Keflavík kærir Terrel Taylor

Stjórn Keflavíkur í Intersportdeildinni í körfuknattleik hafa lagt fram formlega kæru til Körfuknattleikssambands Íslands vegna framkomu Terrel Taylor, leikmanns Grindavíkur, í viðureign Keflavíkur og Grindavíkur í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í gær. Keflvíkingar vilja meina að Taylor hafi viljandi traðkað á hálsi Jóns Nordals Hafsteinssonar og ákváðu því að kæra málið til KKÍ. Atvikið náðist á myndband og afhentu Keflvíkingar KKÍ eintak af því er þeir lögðu fram kæruna. Búast má við viðbrögðum af hálfu KKÍ strax eftir helgi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×