Sport

Áttundi sigurleikur Miami í röð

Sex leikir fóru fram í NBA-körfuboltanum í nótt. Miami Heat sigraði New Jersey Nets með 90 stigum gegn 65 en þetta var áttundi sigurleikur Miami í röð. Shaquille O'Neal skoraði 15 stig fyrir Miami og hirti 11 fráköst. Kobe Bryant var hetja Los Angeles Lakers sem unnu Charlotte Bobcats með eins stigs mun, 117 stigum gegn 116. Bryant skoraði 32 stig, þ.á m. sigurkörfuna á síðustu sekúndu leiksins. Golden State sigraði Atlanta Hawks 105-92, New Orleans skelltu Milwaukee Bucks 111-107 og Denver Nuggets gerðu sér lítið fyrir og sigruðu San Antionio Spurs með 90 stigum gegn 87. Portland lagði Memphis með 80 stigum gegn 66.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×