Sport

NBA í nótt

Fimm leikir voru á dagskrá NBA deildarinnar í körfubolta í nótt og nokkur óvænt úrslit litu dagsins ljós. San Antonio Spurs töpuðu nokkuð óvænt fyrir New York Knicks 88-75, en Spurs léku án aðalstjörnu sinnar Tim Duncan, sem meiddist í fyrrinótt og verður frá keppni í að minnsta kosti tvær vikur. Stephon Marbury var stigahæstur heimamanna í Knicks með 31 stig og 10 stoðsendingar, en San Antonio liðið skoraði aðeins 28 stig í síðarihálfleik og ljóst að þeir munu sakna Duncan mikið á lokasprettinum í deildinni. Nýliðar Charlotte Bobcats nýttu sér fjarveru Steve Francis hjá Orlando og sigruðu 102-97 í leik liðana.  Grant Hill var stigahæstur í liði Orlando með 25 stig, en hjá Bobcats var leikstjórnandinn Brevin Knight atkvæðamestur með 19 stig og átta stoðsendingar.  Þetta var 13. sigurleikur Bobcats á leiktíðinni, en margir höfðu spáð því að nýliðarnir myndu ekki ná að vinna 10 leiki á sínu fyrsta ári í deildinni. Chicago vann auðveldan 105-91 sigur á slöku liði Atlanta Hawks, þar sem Eddy Curry sneri aftur í leikmannahóp Bulls eftir að hafa misst úr 3 leiki vegna meiðsla. Curry skoraði 24 stig og var stigahæstur í liði Chicago sem hefur komið liða mest á óvart í vetur og eru í góðri aðstöðu til að komast í úrslitakeppnina í fyrsta sinn síðan Michael Jordan hætti að leika með liðinu. Dallas Mavericks unnu auðveldan sigur á liði New Orleans Hornets 103-86, þar sem Þjóðverjinn Dirk Nowitzki var stigahæstur með 25 stig og 8 fráköst. Dallas hefur nú unnið báða leikina undir stjórn Avery Johnson, sem tók við af Don Nelson sem þjálfari liðsins um helgina. Lið Portland Trailblazers eru í vondum málum þessa dagana og auk þess að vera í vandræðum með meiðsli leikmanna, er liðið nú í mikilli taphrinu.  Blazers töpuðu fyrir LA Clippers í nótt 96-89 og hafa nú tapað 9 af síðustu 10 leikjum sínum síðan Maurice Cheeks var sagt upp störfum á dögunum.  Liðið hefur líka tapað 16 af síðustu 19 leikjum sínum og stefnir í versta tímabil hjá liðinu síðan það varð NBA meistari fyrir tæpum 30 árum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×