Innlent

18 mánuðir fyrir kynferðisbrot

Hæstiréttur dæmdi í gær mann í 18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum sem áttu sér stað þegar önnur þeirra var átta til tíu ára og hin þrettán til fjórtán ára. Brot mannsins gegn annarri stúlkunni voru hins vegar talin fyrnd. Manninum var gert að greiða stúlkunum miskabætur, annarri 800 þúsund krónur og hinni 500 þúsund krónur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×