Sport

Keflavík í úrslit gegn Grindavík

Það verða Keflavík og Grindavík sem leika til úrslita á Íslandsmóti kvenna í körfuknattleik, en Keflavík sigraði ÍS í oddaleik í Keflavík í gærkvöld, 79-73. Staðan í hálflkeik var 39-27 Keflavík í vil. Alex Stewart var stigahæst í liði Keflavíkur með 23 stig og Bryndís Guðmundsdóttir skoraði 21. Signý Hermansdóttir skoraði 30 stig fyrir ÍS og var besti maður vallarsins. Fyrsti úrslitaleikur Keflavíkur og Grindavíkur fer fram 30. mars.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×