Sport

Sigurganga Miami á enda

Átta leikir fóru fram í NBA-körfuboltanum í nótt sem leið. Miami sem hafði unnið tólf leiki í röð tapaði fyrir Houston, 84-82, og Los Angeles Lakers tapaði sínum sjötta leik í röð þegar liðið beið lægri hlut fyrir Utah, 115-107. Lakers er í níunda sæti Vesturdeildar og ólílklegt að liðið komist í úrslitakeppnina um NBA-meistaratitilinn. Cleveland sigraði Detroit 91-76, Phoenix lagði Atlanta 105-94, New Jersey hafði betur gegn Indiana 98-91, Denver skellti Washington 127-98, Sacramento sigraði Portland 112-93 og Seattle vann Milwaukee 92-84.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×