Sport

Valur og Höttur unnu oddaleikina

Það verða Valur og Höttur sem spila til úrslita um laust sæti í Intersportdeildinni í körfuknattleik að ári en liðin unnu í kvöld oddaleiki sína í undanúrslitum 1. deildar. Valur sigraði Breiðablik að Hlíðarenda með 87 stigum gegn 72 og Höttur sigraði Stjörnuna á Egilstöðum með 100 stigum gegn 74. Þór A. hafið þegar tryggt sér sæti í Intersportdeildinni með því að vinna 1. deildina, og mun það koma í hlut Vals eða Hattar að fylgja þeim upp.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×