Sport

Sjöunda tap Lakers í röð

Sjö leikir fóru fram í NBA-körfuboltanum í nótt sem leið. Orlando Magic tapaði á heimvelli fyrir Charlotte með 94 stigum gegn 108. New Jersey Nets tapaði einnig á heimavelli, fyrir Memphis 96-105, og Houston vann Cleveland 99-80. Denver Nuggets vann Los Angeles Lakers 117-96 þar sem Kobe Bryant skoraði aðeins 18 stig fyrir Lakers. Þetta var sjöundi ósigur liðsins í röð og versta frammistaða Lakers í 11 ár er staðreynd þar sem liðið eru í tíunda sæti Vesturdeildar og litlar líkur á að liðið komist í úrslitakeppnina. Utah Jazz tapaði á heimavelli fyrir Washington 84-85, Sacramento Kings vann Dallas Mavericks 109-101 þar sem tveir menn fóru á kostum í leiknum. Peja Stojakovic var með 38 stig og 9 fráköst í liði Sacramento og Dirk Nowitski var með 35 stig fyrir Dallas. Þá vann Seattle Supersonics lið Portland Trail Blasers 96-91.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×