Sport

Körfuboltamenn í eldlínunni

Körfuboltamenn verða í eldlínunni í dag í undanúrslitum á Íslandsmótinu. Snæfell og Fjölnir eigast við í Stykkishólmi en vinni Snæfellingar sigur í leiknum í dag tryggja þeir sér sæti í úrslitum Íslandsmótsins annað árið í röð en þeir eru 2-0 yfir í einvígi liðanna. Í Keflavík taka heimamenn á móti ÍR. ÍR vann óvæntan sigur í fyrsta leiknum í Keflavík en Keflvíkingar sneru blaðinu við í Seljaskóla þar sem þeir unnu sannfærandi sigur og jöfnuðu metin í einvígi liðanna. Leikirnir í dag hefjast báðir klukkan eitt en leikur Keflavíkur og ÍR verður sýndur beint á Sýn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×