Sport

Snæfell áfram og Keflavík vann

Snæfell varð fyrst til þess að tryggja sér farseðilinn í úrslit Íslandsmóts karla í körfuknattleik þegar liðið lagði Fjölni, 80:77, og vann þar með 3-0 í rimmu liðanna í undanúrslitunum. Keflavík leiðir 2-1 gegn ÍR eftir 97:79 sigur á Breiðhyltingum í Keflavík í dag en ÍR vann fyrsta leikinn í Keflavík á dögunum. Hlynur Bæringsson var stigahæstur Snæfellinga í dag með 28 stig og Sigurður Þorvaldsson kom næstur með 17  Hjá Fjölni var Jeb Ivey stigahæstur með 22 stig og William Coley 21. Hjá Keflvíkingum skoraði Nick Bradford mest eða 28 stig og Anthony Glover kom næstur með 19 stig. Grant Davis var stigahæstur ÍR með 19 stig og Theo Dixon með 15.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×