Sport

Fyrsti leikurinn á föstudaginn

Fyrsti úrslitaleikur Keflavíkur og Snæfells um Íslandsmeistaratitlinn í körfubolta karla fer fram á föstudaginn 1. apríl í Keflavík og hefst klukkan 19.15. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Sýn eins og allir úrslitaleikirnir en þeir geta mest orðið fimm talsins. Það er einnig búið að raða niður næstu tveimur leikjum úrslitaeinvígisins, annar leikurinn fer fram í Stykkishólmi mánudaginn 4.apríl klukkan 19.00 og þriðji leikurinn fer síðan fram í Keflavík, fimmtudaginn 7. apríl klukkan 19.00. Fyrstu þrír leikir lokaúrslita Intersportdeildarinnar:1. leikur: Keflavík, föstudagur 1. apríl 19.15 2. leikur: Stykkishólmur, mánudagur 4. apríl 19.00 3. leikur: Keflavík, fimmtudagur 7. apríl 19.00



Fleiri fréttir

Sjá meira


×