Sport

Larry Brown hættur hjá Pistons?

Óvíst er hvort Larry Brown, þjálfari núverandi NBA-meistara Detroit Pistons, verði meira með í vetur en hann fór í aðgerð vegna nýrnaveikis fyrr í þessum mánuði. Brown hefur ekki geta verið með liði sínu síðustu níu leiki og tilkynnti Joe Dumars, forseta Pistons, að hann myndi hvíla út vikuna. "Það líður ekki á löngu þangað til ég gef mínum mönnum endanlega ákvörðun," sagði Brown. "Við verðum að sjá hvað úr verður þegar mér batnar. Ég veit ekki hvort ég geti þjálfað án þess að vera heill heilsu," bætti Brown við sem hefur átt við nýrnaveiki að stríða af völdum mjaðmaaðgerðar sem hann fór í í nóvember á síðasta ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×