Sport

Keflavík sigraði fyrsta leikinn

Keflavík sigraði Grindavík örugglega, 88-71, í fyrsta leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna, en leikið var í Keflavík. Keflavík náði níu stiga forskoti eftir fyrsta leikhluta og leiddi með fjórtán stiga mun, 47-33, í hálfleik, munur sem Grindavík náði aldrei að brúa. Atkvæðamestar í liði Keflavíkur voru Bryndís Guðmundsdóttir með 22 stig og 10 fráköst, en Bryndís er aðeins 17 ára og greinilegt að þarna fer mikið efni. Fyrirliðinn Birna Valgarðsdóttir gerði 20 stig og tók 10 fráköst og Alexandria Stewart setti niður 15 stig, tók 11 fráköst og gaf 7 stoðsendingar.  Hjá Grindavík var Rita Williams allt í öllu, setti niður 27 stig og tók 10 fráköst en Erla Reynisdóttir setti 15 stig. Næsti leikur liðanna fer fram á laugardaginn og þá í Grindavík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×