Sport

Átta mörk Snorra dugðu ekki

Snorri Steinn Guðjónsson átti mjög góðan leik þegar Grosswallstadt tapaði fyrir Gummersbach 23-28 í þýska handboltanum í gær. Snorri var markahæstur í liði Grosswallstadt, skoraði átta mörk, þar af þrjú af vítalínunni, en Einar Hólmgeirsson skoraði þrjú. Kóreumaðurinn Kyung-Shin Yoon skoraði tíu mörk fyrir Gummersbach. Markús Máni Michaelsson skoraði fimm mörk og Alexander Petterson þrjú þegar Düsseldorf tapaði fyrir Lubecke 31-32.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×