Sport

Snæfell vann leik númer tvö

Snæfell sigraði Keflavík í öðrum leik liðana í úrslitum Intersportdeildarinnar í körfuknattleik í kvöld með 97 stigum gegn 93. Keflvíkingar voru með pálmann í höndunum og leiddu þegar lítið var eftir, en góður endasprettur Snæfellinga sá til þess að staðan í einvíginu er 1-1. Michael Ames skoraði 24 stig og gaf 8 stoðsendingar fyrir Snæfell í kvöld, Calvin Clemmons skoraði 20 stig og Hlynur Bæringsson skoraði 18 stig og tók 15 fráköst. Hjá Keflavík var Nick Bradford með 26 og 9 fráköst, Jón Hafsteinsson skoraði 18 stig, Gunnar Einarsson 16 og Magnús Þ. Gunnarsson 15. Næsti leikur er á fimmtudaginn og þá í Keflavík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×