Innlent

Bóndinn ábyrgur fyrir kindinni

Héraðsdómur Reykjavíkur gerði með dómi sínum í gær bónda ábyrgan fyrir kind sem slapp upp á þjóðveg og olli tjóni á bíl sem ók á hana. Lausaganga búfjár er bönnuð þar sem atvikið varð og er bóndinn talinn bera ábyrgð á því að hún slapp upp á veg. Tjóninu er reyndar skipt á milli bóndans og bíleigandans þar sem hann er talinn hafa ekið full greitt miðað við aðstæður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×