Sport

Baron Davis og Vince Carter bestir

Vince Carter hjá New JerseyNets og Baron Davis, leikmaður Golden State Warriors, voru valdir bestu leikmenn vikunnar í NBA-körfuboltanum. Nets tapaði ekki leik í vikunni og fór Carter hamförum og skoraði 34,7 stig, tók 5,3 fráköst, gaf 4,3 stoðsendingar og stal 2,3 boltum að meðaltali í leik. Hann nýtti að auki 54,5 skota sinna. Davis leiddi lið sitt til sigurs í þremur leikjum af fjórum og skoraði 28,8 stig, gaf 12 stoðsendingar, tók 6,3 fráköst og stal 2,5 boltum að meðaltali í leikjunum fjórum. Hann setti persónulegt met í leik gegn Houston Rockets þegar hann skoraði 40 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×