Sport

Cleveland heldur enn í vonina

Cleveland Cavaliers halda enn í vonina um að komast í úrslitakeppni NBA-körfuboltans eftir fjórtán stiga sigur á Boston Celtics, 100-86, í nótt. LeBron James skoraði 32 stig fyrir Cleveland en Boston hvíldi marga af lykilmönnum sínum. Cleveland verður að vinna Toronto Raptors í lokaleiknum og treysta á að New Jersey Nets tapi fyrir Celtic svo Cleveland hirði áttunda sætið í Austurdeildinni. New Jersey sigruðu Washington Wizards með 109 stigum gegn 101 en Nets hafa því örlögin í eigin hendi fyrir lokaumferðina og dugir sigur gegn Boston. Miami sigraði Charlotte Bobcats 99-80, Chicago Bulls tryggðu sér fjórða sætið með sigri á New York Knicks 92-91, meistarar Detroit Pistons sigruðu Atlanta 95-68, Denver sigraði Portland 119-115, Dallas bar sigurorð af Seattle 101-96 og Toronto vann Milwaukee með 127 stigum gegn 109.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×