Erlent

Verður að synda til Ameríku

Þegar ný útgáfa af Opera-vefvafranum, sem lagt hefur grunninn að velgengni Opera Software, var kynnt á dögunum sagðist Jón mundu synda til Ameríku ef ein milljón notenda sækti vafrann á netið fyrstu fjóra dagana eftir að hann var settur á markað. Tölur sýna að ein milljón og fimmtíu þúsund manns sóttu vafrann á þessu tímabili og í framhaldinu hefur Jón verið krafinn um að standa við stóru orðin. Jón hefur í samtölum við norska fjölmiðla sagst munu leggjast til sunds og að hann muni koma við á Íslandi hjá móður sinni á leiðinni til að fá sér heitt kakó.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×