Innlent

Kosningar í október

Ákveðið hefur verið að gengið verði til kosninga um sameiningu sveitarfélaga við Eyjafjörð þann áttunda október næstkomandi. Formaður sameiningarnefndarinnar, Sigrún Björk Jakobsdóttir, segir um afar spennandi verkefni að ræða. "Ef þetta gengur eftir þá verður um stærstu sameiningu af þessu tagi á landsbyggðinni og mér sýnist þetta snerta tæplega 25 þúsund íbúa á þessu svæði. Þess vegna er áríðandi að vel sé að þessu staðið og verða haldnir kynningarfundir í hverju byggðalagi í haust." Athygli vekur að Grímsey er ekki meðal þeirra sveitarfélaga sem um ræðir en Sigrún kunni enga skýringu á hvers vegna svo væri.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×