Innlent

Gunnar býður sig fram á landsfundi

Gunnar Svavarsson, forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði, hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar. "Ég hef ákveðið að taka þessari áskorun og miðla þeirri reynslu sem til staðar er og ég bý yfir, meðal annars vegna starfa minna innan jafnaðarmannahreyfingarinnar síðastliðna áratugi," segir Gunnar. Gunnar hefur verið bæjarfulltrúi í Hafnarfirði frá árinu 2002. Hann var fyrsti formaður Samfylkingarinnar í Hafnarfirði árið 1999 og er formaður sveitarstjórnarráðs Samfylkingarinnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×