Viðskipti innlent

Kaupa saman útvarpsstöðvar

Ár og dagur, útgáfufélag Blaðsins, og Íslenska sjónvarpsfélagið sem rekur Skjá einn hafa keypt 97 prósent hlutafjár í Pyrit fjölmiðlun ehf. sem rekur útvarpsstöðvarnar KissFM og X-FM. Í tilkynningu frá Skjá einum segir að nýir eigendur ætli sér að vinna með öflugum hópi núverandi starfsfólks með það markmið að auka bæði markaðshlutdeild og hlustunarsvæði stöðvanna. Kaupverð er sagt trúnaðarmál.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×