Viðskipti innlent

Mikill áhugi á bréfum Mosaic

Fagfjárfestar óskuðu eftir að kaupa fjórfalt fleiri hluti í Mosaic Fashion en í boði voru en allt hlutaféð er selt fyrir 3,7 milljarða króna. Um er að ræða nýja hluti sem seldir voru á genginu 13,6, en hlutafjárútboðið er liður í undirbúningi að skráningu Mosaic Fashions í Kauphöll Íslands. Í júní áformar félagið svo að selja hlutafé til almennings á sama verði og hlutafé var selt til fagfjárfesta.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×