Innlent

Ný framkvæmdastjórn kjörin

Ný framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar var kjörin síðdegis á landsfundinum sem fram fer í Egilshöll. Þau sem náðu kjöri eru Sigríður Jóhannesdóttir, Sigrún Grendal, Tryggvi Felixson, Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir, Karl V. Matthíasson og Ingileif Ástvaldsdóttir. Tuttugu félagsmenn gáfu kost á sér í framkvæmdastjórnina. Innan tíðar verður svo kosið í flokksstjórn Samfylkingar. Landsfundinum lýkur síðar í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×