Viðskipti innlent

SPRON kaupir ekki Allianz

Áform SPRON um kaup á 80 prósenta hlut í Hringi eignarhaldsfélagi, sem er eignarhaldsfélag utan um rekstur Allianz á Íslandi, hafa runnið út um þúfur. "Ástæða þessarar ákvörðunar eru skilyrði sem Allianz í Þýskalandi og eigendur Hrings eignahaldsfélags bundu samþykki sitt við og SPRON taldi sig á þessu tímapunkti ekki geta gengið að," segir í tilkynningu frá Hringi eignarhaldsfélagi. Eigendur Hrings höfðu samþykkt tilboð SPRON í Allianz snemma í maí. Eigendur Hrings eignarhaldsfélags eru meðal annars Baugur Group, Sparisjóður Kópavogs og nokkrir einstaklingar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×