Tryggvi inn og Rúnar hættur 25. maí 2005 00:01
Landsliðsþjálfarnir í knattspyrnu kynntu í gær landsliðshópinn sem mætir Ungverjum 4. júní og liði Möltu fjórum dögum síðar á Laugardalsvellinum. Þeir völdu 20 manna hóp þar sem Heiðar Helguson verður í banni í fyrri leiknum - og einfaldlega til að hafa vaðið fyrir neðan sig. "Okkur líst vel á slaginn. Við eigum góðan möguleika gegn þessum liðum og ætlum okkur sex stig úr leikjunum. Það verður erfitt að fylla skarð Hermanns, sem er meiddur, og Heiðars en við stefnum engu að síður á sigur." Landsliðinu hefur gengið afleitlega í þeim fimm leikjum sem lokið er í undankeppninni fyrir HM 2006 og aðeins uppskorið eitt jafntefli. Fyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen var ekki með í síðasta leik, gegn Króötum, en Ásgeir býst við honum sterkum inn nú. "Hann er fyrirliði landsliðsins og býst ég við að hann mæti tvíefldur í þessa leiki. Hann gerði slíkt hið sama í samskonar júníleikjum fyrir tveimur árum, gegn Litháum og Færeyjum, og ég er viss um að hann gerir hið sama nú." Aðspurður um stöðu Rúnars Kristinssonar staðfestir Ásgeir að hann sé endanlega hættur í landsliðinu. "Hann treystir sér ekki í þetta lengur. Hann á fullt í fangi með að klára tímabilið í Belgíu." Um félaga hans hjá Lokeren, Arnar Grétarsson, sagði Ásgeir einfaldlega: "Hann hefur fengið mörg tækifæri hjá okkur og okkur finnst rétt að gefa yngri leikmönnum tækifæri til að sanna sig." Einn þeirra "ungu" er hinn 29 ára gamli Jóhannes Harðarson sem var nú valinn í landsliðshópinn í fyrsta sinn. "Valið á honum er ekkert einkennilegt. Ég hef alltaf haldið mikið upp á Jóhannes og af hverju á hann ekki að fá sitt tækifæri eins og hver annar?" Hinn nýliðinn í hópnum er Haraldur Freyr Guðmundsson sem hefur staðið sig vel í norska boltanum í vor - rétt eins og Jóhannes. Þá vekur einnig athygli að enginn sona Guðjóns Þórðarsonar er í hópnum en Bjarni og Þórður hafa lítið fengið að spila með sínum liðum undanfarið og Jóhannes Karl gefur ekki kost á sér eins og fram hefur komið.
Íslenski boltinn Mest lesið Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump Golf Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Golf „Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“ Fótbolti Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Sport Frakkar í mál og vesen hjá Chelsea vegna rasískra söngva Argentínumanna Enski boltinn McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Sport Como viðurkennir að leikmaður liðsins hafi kallað Hwang Jackie Chan Enski boltinn Sjáðu vítaklúður Nikolaj Hansen og mörkin í gær Fótbolti Neville vill enskan þjálfara fyrir landsliðið Enski boltinn Fleiri fréttir Borgarstjóri Parísar synti í Signu: „Ekkert of hættulegt“ Fer frá Barcelona til Chelsea Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Wiegman gaf lítið fyrir það að hún gæti tekið við enska karlalandsliðinu Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Sjáðu vítaklúður Nikolaj Hansen og mörkin í gær „Það var alltaf hugmyndin, þannig að mission completed“ McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Como viðurkennir að leikmaður liðsins hafi kallað Hwang Jackie Chan Miklar væntingarnar til íslenska landsliðsins réttlætanlegar Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump „Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“ Dagskráin í dag: Upphitun fyrir Opna breska Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Neville vill enskan þjálfara fyrir landsliðið Frakkar í mál og vesen hjá Chelsea vegna rasískra söngva Argentínumanna Uppgjörið: Shamrock Rovers - Víkingur 2-1 | Víti í súginn í uppbótartíma og Víkingar úr leik Englendingar á EM en Svíar og Norðmenn þurfa í umspil Þorsteinn: Ég held að maður geti ekki farið fram á meira „Náði að pota honum með löngu leggjunum“ Fjör hjá Víkingum í Dublin Faðir Kobe Bryant er látinn Markvörðurinn sótti skóflu og fyllti upp í holu á vellinum Stærsta opna LAN-mót landsins fer fram í ágúst Byrjunarlið Íslands: Fjórar breytingar frá sigrinum mikilvæga Uppgjör: Pólland - Ísland 0-1 | Glæsimark Sveindísar dugði til sigurs „Ég held að allir geri sér grein fyrir því hvað er í húfi“ HK endurheimtir tvo leikmenn sem urðu Íslandsmeistarar með liðinu Sveinbjörn fyrsti íslenski handboltamaðurinn til að spila í Ísrael Sjá meira