Landsbankadeildin í kvöld 26. maí 2005 00:01
Fjórir leikir fóru fram í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld og eru Valur og FH enn með fullt hús stiga eftir leiki kvöldsins. KR tapaði óvænt heima fyrir Keflavík og ungu leikmennirnir tryggðu Skagamönnum nauman sigur á Grindavík uppá Skaga. Í Árbæ lögðu Valsmenn Fylkismenn með tveimur mörkum gegn einu. Matthías Guðmundsson gerði bæði mörk Vals en Valur Fannar Gíslason hafði í millitíðinni jafnað fyrir Fylki. Í Frostaskjólinu litu óvænt úrslit dagsins ljós. Keflvíkingar lögðu heimamenn í KR með tveimur mörkum gegn einu og skoraði Guðmundur Steinarsson bæði mörk Keflvíkinga. Bjarnólfur Lárusson skoraði mark KR-inga og jafnaði metin í 1-1. Ómar Jóhannesson, markvörður Keflavíkur, var síðan hetja gestanna er hann varði vítaspyrnu frá Arnari Gunnlaugssyni. Íslandsmeistarar FH-inga lentu ekki í teljandi erfiðleikum með lánlausa Vestmannaeyinga og sigruðu 3-0. Tryggvi Guðmundsson hélt uppteknum hætti og skoraði eitt af mörkum FH-inga, en þetta var fimmta mark hans í þremur fyrstu leikjum sumarsins. Allan Borgvardt og Atli Viðar Björnsson gerðu hin mörkin tvö. Uppá Akranesi voru ungu leikmennirnir í aðalhlutverki er Skagamenn lögðu Grindvíkinga með þremur mörkum gegn tveimur. Eftir að gestirnir komust yfir með marki frá Magnúsi Þorsteinssyni í fyrri hálfleik, jafnaði ungur og mjög efnilegur leikmaður, Hafþór Ægir Vilhjálmsson að nafni, metin með sínu fyrsta marki í Landsbankadeildinni. Hjörtur Júlíus Hjartarson kom Skagamönnum yfir áður en Mounir Ahandour jafnaði fyrir Grindavík. Það var síðan annar ungur leikmaður, Andri Júlíusson, sem gerði sigurmark Skagamanna með marki undir blálokin, einnig hans fyrsta mark í Landsbankadeildinni.
Íslenski boltinn Mest lesið Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump Golf Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Golf Víkingar með augun á leik í Albaníu í kvöld Fótbolti „Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“ Fótbolti Enska sambandið vill Guardiola og er tilbúið að bíða Enski boltinn Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Sport Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Enski boltinn Ætla sér inn á Ólympíuleikana með hjálp dómstóla Sport McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Sport Fleiri fréttir Grátlegt tap niðurstaðan og barátta um sæti í A-deild framundan Hin reynda Dinkins í raðir Njarðvíkur Enn ein stjarnan slítur krossband í hné Guðmundur Bragi til Danmerkur Stefán Ingi á leið til Noregs KR fær ungan framherja frá Húsavík Fyrrum leikmaður Everton í teymi Slot Fórnaði sér fyrir fyrsta boltann frá Mbappé FIFA hefur rannsókn á rasískum söngvum Argentínumanna Ætla sér inn á Ólympíuleikana með hjálp dómstóla Adam Silver ver nýjan svuntuskatt NBA deildarinnar Enska sambandið vill Guardiola og er tilbúið að bíða Víkingar með augun á leik í Albaníu í kvöld Frá Liverpool beint í teymi Flick Cecilía Rán spilar með Internazionale í vetur Luka Modric framlengir samning sinn við Real Madrid Liðsfélagi Hákonar á leið til United Jón Axel fer í nýtt félag á Spáni Borgarstjóri Parísar synti í Signu: „Ekkert of hættulegt“ Fer frá Barcelona til Chelsea Segja að Alexander-Arnold sé opinn fyrir því að fara til Real Madrid Wiegman gaf lítið fyrir það að hún gæti tekið við enska karlalandsliðinu Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Sjáðu vítaklúður Nikolaj Hansen og mörkin í gær „Það var alltaf hugmyndin, þannig að mission completed“ McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Como viðurkennir að leikmaður liðsins hafi kallað Hwang Jackie Chan Miklar væntingarnar til íslenska landsliðsins réttlætanlegar Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump Sjá meira