Sport

Liverpool í skrúðgöngu um borgina

Liverpool, sigurvegarar Meistaradeildar Evrópu frá því í gær, fóru í kvöld í skrúðgöngu um Liverpool borg með bikarinn eftirsótta. Ferskir eftir vítaspyrnukeppnina gegn Milan í Istanbul í gær lentu leikmennirnir á John Lennon flugvellinum og gengu um borð í opinn tveggja hæða strætisvagn sem flutti liðið um borgina. Yfir 750 þúsund stuðningsmenn, sem máluðu borgina rauða, tóku á móti liðinu og sáu það keyra um með bikarinn góða. Þegar í miðbæinn var komið voru um 300 þúsund stuðningsmenn liðsins mættir á torgið og að sögn hefur aldrei fleira fólk verið í miðborg Liverpool. Þetta var í fimmta skiptið sem liðið vinnur þennan eftirsótta titil ég fær því félagið bikarinn til eignar. Aðeins AC Milan(6) og Real Madrid(9) hafa unnið titilinn oftar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×