Sport

KA vann Akureyrarslaginn

KA vann stórsigur á nágrönnum sínum í Þór á Akureyrarvelli í dag. Lokatölur urðu 6-1. Aðeins eitt mark var skorað í fyrri hálfleik og það gerði Húsvíkingurinn Pálmi Rafn Pálmason. Steinn Símonarson jafnaði eftir þrjár mínútur í seinni hálfleik með marki úr vítaspyrnu, en eftir það skildu leiðir. Jóhann Þórhallsson kom KA aftur yfir tveim mínútum eftir mark Steins með marki einnig úr vítaspyrnu. Jóhann Helgason og Pálmi Rafn skoruðu síðan áður en Hreinn hringsson inniglaði stórsigur KA með tveimur mörkum á síðustu fimm mínútum leiksins. KA situr eftir leikinn í þriðja sæti með sex stig eftir þrjá leiki. Þór er sæti fyrir neðan, tveimur stigum á eftir nágrönnum sínum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×