Heiðar Davíð í úrslit 1. júní 2005 00:01
Heiðar Davíð Bragason kylfingur úr GKJ komst áfram í 64-manna úrslit á Opna breska áhugamannamótinu í golfi í gær og hafnaði í 3.-7. sæti eftir hringina tvo. Heiðar tryggði sig þar með áfram í 64-manna holukeppni með útsláttarfyrirkomulagi og hefur leik kl. 11:17 í dag miðvikudag. Leikið verður með því fyrirkomulagi að efsti maður leikur við neðsta mann þannig að möguleikar Heiðars ættu að vera ágætir. Heiðar lék annan hringinn í gær á einu yfir pari eða 71 höggi en lék fyrsta hringinn á mánudag á 69 höggum. Leikið er á Royal Birkdale-vellinum sem er skammt frá Liverpool. Heiðar var aðeins 5 höggum á eftir efsta manni, Svisslendingnum, Damian Ulrich. "Ég byrjaði á þremur pörum í dag og síðan fékk ég þrjá skolla í röð, þá var ég að reyna of mikið við pinnann og setti boltann í sandglompur í staðinn og kom mér í vandræði. Þá ákvað ég að reyna að spila af meira öryggi - upp á parið og þá gekk mér mun betur. Ég fékk fugl á par-3 holu, þeirri sjöundu og einnig á 17. holunni. Ég er mjög sáttur við hringinn í dag og líka í gær." sagði Heiðar Davíð í samtali við Kylfingur.is í gærkvöldi. Sigmundur Einar Másson úr GKG lék á 77 höggum í gær og 79 í fyrradag og er úr leik.
Golf Mest lesið Með skýr skilaboð til Arons og Gylfa: Hættið á meðan þið getið gert það sjálfir Fótbolti „Datt aldrei í hug að Arnar yrði lélegri en Arnar“ Fótbolti Frakkland verður með Íslandi í riðli Fótbolti Donni markahæstur meðan Guðmundur skoraði eitt gegn Ágústi Handbolti Umfjöllun: Ísland - Kósovó 1-3 | Aldrei verið á verri stað Fótbolti Fyrsti El Clásico sigurinn skilaði sér: „Við höfðum alltaf trú“ Sport „Ætla ekki að standa hérna og afsaka neitt“ Fótbolti Sjáðu mörkin úr leik Íslands og Kósovó Fótbolti Gísli Laxdal snýr heim á Skagann Íslenski boltinn Einkunnir Íslands: Martraðarinnkoma og fall úr B-deild Fótbolti Fleiri fréttir Frakkland verður með Íslandi í riðli Fyrsti El Clásico sigurinn skilaði sér: „Við höfðum alltaf trú“ Með skýr skilaboð til Arons og Gylfa: Hættið á meðan þið getið gert það sjálfir Gísli Laxdal snýr heim á Skagann Andrea og stöllur í góðri stöðu eftir fyrri leikinn „Ætla ekki að standa hérna og afsaka neitt“ „Verður að vera þolinmæði og verður að vera bjartsýni“ „Mér fannst það svolítið vanta í dag“ „Horfi enn þá mjög jákvæður á framhaldið“ „Á báðum endum vallarins ekki nógu góðir“ Heimir stýrði til sigurs og Írland heldur sér uppi Einkunnir Íslands: Martraðarinnkoma og fall úr B-deild „Datt aldrei í hug að Arnar yrði lélegri en Arnar“ Umfjöllun: Ísland - Kósovó 1-3 | Aldrei verið á verri stað Martin með tíu stoðsendingar en liðið kastaði sigrinum frá sér Sjáðu mörkin úr leik Íslands og Kósovó Valskonur taka tveggja marka tap með sér heim á Hlíðarenda Sædís með mark og stoðsendingu í opnunarleiknum Styrmir stigahæstur gegn meisturunum Alexandra lagði upp í frumrauninni Sex breytingar á byrjunarliðinu Íslenskur fjöldasöngur í Murcia Lucie setti nýtt Evrópumet og vann brons Gummi Ben og Kjartan Henry hituðu upp í Murcia Cecilía varði víti Hamilton dæmdur úr leik í Kína Máluðu Smárann rauðan Ronaldo alveg sama um eftirhermu Højlunds Græn gleði í Smáranum Mourinho mætti á bardagakvöldið hjá Gunnari Sjá meira