Sport

Jol bjartsýnn

Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur ætlar ekki að láta brotthvarf Frank Arnesen til Chelsea hafa áhrif á sig og er bjartsýnn á að liðið geti haldið áfram ótrautt. Fjölmiðlar á Englandi voru að gera því skóna að Jol myndi taka við starfi Danans, samhliða því að að stýra liðinu, en hann hefur blásið á þær fréttir. "Ég ætla ekki að vinna bæði störfin hjá félaginu, það kemur ekki til greina. Við erum strax farnir að huga að því að finna eftirmann Arnesen og framundan eru bjartir tímar. Paul Robinson er kominn langt með að skrifa undir samning við okkur og mér þykir það endurspegla þá skuldbindingu sem ungu leikmennirnir okkar eru að sýna. Við munum halda áfram ótrauðir," sagði Hollendingurinn ákveðinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×