Sport

Santini tekur við Auxerre

Jacques Santini fyrrverandi þjálfari franska landsliðsins í knattspyrnu og Tottenham tók í dag við franska liðinu Auxerre sem eru nýkrýndir bikarmeistarar þar í landi. Santini tekur við af Guy Roux sem lét af störfum eftir að hafa lagt Sedan í úrslitaleik bikarkeppninnar á sunnudag. Santini sem er 53 ára hætti skyndilega hjá Tottenham í vetur af persónulegum ástæðum eftir að hafa aðeins stýrt liðinu í 4 mánuði. Hann var sagður hafa lent upp á kant við Danann Frank Arnesen sem þá var yfirmaður íþróttamála hjá félaginu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×