Sport

Grótta stríddi ÍA

Landsbankadeildarlið ÍA slapp með skrekkinn og marði sigur á Gróttu, 1-2 í 32 liða úrslitum VISA bikarkeppni karla í knattspyrnu í kvöld en leikurinn fór fram á Gróttuvelli á Valhúsahæð á Seltjarnarnesi. Staðan í hálfleik var 0-0 en Skagamenn komust yfir í upphafi síðari hálfleiks. Gróttumenn sem leika í 3. deild náðu að jafna metin á 75. mínútu með marki Ómars Bendtsen. Unnar Valgeirsson skoraði sigurmark ÍA þegar 5 mínútur voru til leiksloka. Aðrir leikir í 32 liða úrslitunum fara fram 19.-20. júní.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×