Sport

Er hér til þess að ná árangri

Það gustar um Guðjón Þórðarson í stjórastól Notts County þótt ekki hafi hann setið lengi. Hann er búinn að leggja línurnar fyrir leikmenn liðsins sem hann segir hafa leikið undir getu. Guðjón segir að geti þeir ekki farið eftir því sem hann segir geti þeir fundið sér annað félag. „Þeir geta farið sínar leiðir en ef þeir gera það verða þeir ekki ánægðir með það hvar þeir enda," sagði Guðjón í samtali við Nottingham Evening Post en hann hyggst beita heraga hjá Notts County. „Ef leikmönnum líkar ekki við aðferðir mínar geta þeir farið annað. Það er ekkert vandamál af minni hálfu. Agi er mikilvægur og menn vita hvenær þeir hafa farið yfir strikið. Ég er ekki í þessu starfi til að eignast vini. Ég er hér til þess að ná árangri."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×