Sport

Maltverjar minnka muninn

Maltverjar eru að sækja í sig veðrið og hafa minnkað muninn í 2-1 gegn Íslendingum á Laugardalsvelli. Brian Said skoraði á 59. mínútu. Það hefur dofnað mikið yfir íslenska liðinu. Árni Gautur hálfver langskot eftir aukaspyrnu og Brian Said fylgir á eftir og skorar í tómt markið úr markteignum. Þetta er 18. markið sem íslenska liðið fær á sig í undankeppninni. Tryggvi Guðmundsson átti skot af 40 metra færi sem hafnaði í þverslánni en hann hefur áður átt skot í slána í leiknum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×