Viðskipti innlent

Sameining kemur ekki til greina

Einar Sveinsson, stjórnarformaður Íslandsbanka, telur sína blokk í bankanum enn hafa meirihluta, þrátt fyrir að Burðarás sé orðinn þriðji stærsti hluthafinn í bankanum eftir stórviðskipti í gær. Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra segir valdasamþjöppun í bankageiranum slæm tíðindi og telur ekki koma til greina að Landsbanki og Íslandsbanki sameinist. Svo virðist sem mönnum beri ekki saman um það hvort Straumsmenn, og þar með Landsbankinn, sé kominn með undirtökin í Íslandsbanka eftir kaup Burðaráss á fjögurra prósenta hlut í bankanum í gær. Einar Sveinsson, stjórnarformaður Íslandsbanka, er hins vegar ekki í vafa. Hann segir valdahlutföll ekki hafa breyst. Aðspurður hvort átökin milli þessara tveggja meginblokka hluthafa í Íslandsbanka séu jafn hörð og af er látið segist Einar telja að meira sé gert úr þeim en efni standi til. Ef allt væri logandi þá hefði bankinn ekki náð þeim árangri sem hann hefði náð. „Síðastliðið ár var besta ár í sögu bankans nokkurn tíma og það er áframhaldandi góður árangur. Menn geta ekki bæði unnið vinnuna sína og staðið í slagsmálum. Ég held að það liggi í augum uppi,“ segir Einar.  Það verður þó ekki fram hjá því horft að eigendur Landsbankans hafa styrkt stöðu sína verulega innan Íslandsbanka. Spurður hvort komi til greina að sameina þessa tvo banka segir Einar það hæpið. „Þá myndi virkilega eiga sér stað blóðbað. En það er alveg ljóst að Björgólfsfeðgar hafa verið að styrkja stöðu sína,“ segir Einar.  Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra hefur áhyggjur af valdasamþjöppun í bankakerfinu. Hún segir það ekki góð tíðindi ef sömu aðilar eigi Íslandsbanka og Landsbanka, kannski með það í huga að sameina þá. Þegar rætt hafi verið um hugsanlega sameiningu tveggja banka fyrir nokkrum árum hafi svör samkeppnisyfirvalda verið þau að slíkt samræmdist ekki samkeppnislögum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×