Viðskipti innlent

Breytingar á úrvalsvísitölunni

Kauphöllin kynnir á morgun nýja samsetningu úrvalsvísitölunnar fyrir seinni hluta ársins. Hún tekur svo gildi 1. júlí næstkomandi. Greiningardeild Íslandsbanka gerir ráð fyrir því að SÍF og Jarðboranir komi inn í úrvalsvísitöluna að þessu sinni í stað Flögu og Samherja. Að öðru leyti er reiknað með óbreyttri skipan. Fimmtán félög mynda grunninn að úrvalsvísitölunni.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×