Sport

Chelsea kaupir tvo varnarmenn

Chelsea mun ganga frá kaupum á spænska varnarmanninum Asier del Horno eftir helgina en hann kemur frá Athletic Bilbao fyrir 12 milljónir punda. Horno er vinstri bakvörður og á að leysa af hólmi Frakkann William Gallas sem ku ekki vera í framtíðarplönum Jose Mourinho þjálfara. Jokin Barcena umboðsmaður Del Horno lét þessi orð falla í viðtali við spænska dagsblaðið Marca í dag. Hann sagði að skv. samtali sínu við ráðamenn hjá Chelsea væri félagið einnig að öllum líkindum að ganga frá kaupum á öðrum varnarmanni, Kakha Kaladze frá AC Milan eins og hefur reyndar komið fram í fjölmiðlum í vikunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×