Sport

Leikmaður Man Utd laus úr fangelsi

Danski leikmaðurinn Mads Timm hjá Manchester United er laus úr fangelsi en honum var stungið í steininn fyrir gáleysi í umferðinni. Timm er tvítugur miðvallarleikmaður í varaliði Man Utd. Vítaverður akstur hans í umferðinni olli alvarlegu slysi og hefur hann setið inni fyrir brotið. Hann átti upphaflega ekki að sleppa út fyrr en 3. september en hefur verið leystur út á skilmálum. Hann þarf að fá sérstakt leyfi þegar hann á leik að kvöldi til en að öðru leyti eru engin vandamál varðandi lausn hans úr fangelsinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×