Sport

Bröndby meistari

Bröndby tryggði sér meistaratitilinn í Danmörku í gær með því að vinna stórsigur 7-0 á Herfölge.  Thomas Kahlenberg var besti maður leiksins og skoraði tvö mörk. Bröndby á enn tvo leiki eftir í deildinni, er í efsta sæti með 63 stig en FC Kaupmannahöfn er í öðru sæti með 52 stig og á þrjá leiki eftir.  Þetta er í fyrsta sinn sem Michael Laudrup þjálfari hampar danska meistaratitlinum en þrátt fyrir frábæran feril sem leikmaður tókst honum ekki að vinna titilinn þegar hann var að spila. Hann vann þó tilta með Real Madrid, Barcelona, Juventus og Ajax. Bröndby vann tvöfalt í Danmörku því liðið varð einnig bikarmeistari.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×