Sport

Bolton fær Laurent Robert

Franski knattspyrnumaðurinn Laurent Robert er á förum frá Newcastle í ensku úrvalsdeildinni en umboðsmaður hans segir í viðtali við BBC í dag að leikmaðurinn sé búinn að semja við Bolton. Robert á aðeins eftir að gangast undir læknisskoðun áður en hann skrifar undir 3 ára samning á morgun mánudag. Robert átti aldrei skap saman með Graeme Souness knattspyrnustjóra Newcastle og stóð alltaf til að hann yfigæfi liðið í sumar. Sam Allardyce hefur lengi verið aðdáandi Robert og vill sameina hann á ný með Jay-Jay Okocha en þeir léku áður vel saman hjá Paris Saint Germain. Bolton hugsar stórt fyrir komandi tímabil enda verður liðið í Evrópukeppni í fyrsta sinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×