Sport

Van Persie grunaður um nauðgun

Sóknarmaður Arsenal, Hollendingurinn Robin Van Persie, er í haldi lögreglunnar í Rotterdam, grunaður um nauðgun. Van Persie, sem er 21 árs, var handtekinn í gær en meint nauðgun átti sér stað um helgina. Leikmaðurinn hefur ekki verið ákærður en það má halda honum í þrjá daga án ákæru. Van Persie þykir vera einn efnilegasti knattspyrnumaður Hollendinga og skoraði sitt fyrsta mark fyrir hollenska landsliðið gegn Finnum á dögunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×