Sport

Persie áfram í grjótinu í nótt

Hollenski landsliðsmaðurinn Robin van Persie, sóknarmaður Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrn dúsar í fangelsisklefa í nótt, aðra nóttina í röð. Hann var handtekinn í gærkvöldi, mánudagskvöld, eftir að stúlka kærði hann fyrir nauðgun í Rotterdam í Hollandi en atvikið á að hafa átt sér stað sl. laugardagskvöld. Van Persie hefur ekki enn verið formlega kærður en hann kemur fyrir dómara á morgun. Þar er reiknað með að ákveðið verði hvort næg sönnunargögn séu fyrir hendi til að leggja kæruna fram en lög í Hollandi kveða á um að halda megi grunuðum í grjótinu í allt að 3 sólarhringa án þess að kæra sé lögð fram. Arsenal hefur kosið að tjá sig ekki um málið en félagið greiddi £2.75milljónir fyrir leikmanninn í upphafi síðasta leiktímabils.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×