Sport

Van Persie áfram í varðhaldi

Farið hefur verið fram á að gæsluvarðhald yfir hollenska landsliðsmanninum Robin van Persie verði framlengt út morgundaginn, vegna meintrar nauðgunar hans á ungri stúlku um helgina. Lögmaður Arsenal-leikmannsins gefur lítið út á ásakanirnar og segir skjólstæðing sinn alsaklausan. "Ég hef ákveðnar heimildir fyrir því að þessi stúlka sé ekki við eina fjölina felld," sagði lögfræðingur leikmannsins í dag. Ljóst er að málið er farið að draga verulegan dilk á eftir sér og van Persie gæti verið í afar vondum málum ef hann  verður fundinn sekur um að hafa nauðgað stúlkunni á skemmtistað í Hollandi á laugardagskvöldið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×