Sport

Lyn og Tromsö féllu úr bikarkeppni

Norsku úrvalsdeildarliðin Lyn og Tromsö féllu óvænt úr leik í 32 liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær. Stefán Gíslason skoraði eina mark Lyn sem tapaði fyrir Hönefoss 2-1 en Tromsö tapaði fyrir Alta 2-1. Jóhannes Harðarson og félagar í Start unnu Manndalskammeratanna 2-1 og Haraldur Freyr Guðmundsson var í liði Álasunds sem lagði Hödd einnig 2-1. Þá kom Veigar Páll Gunnarsson inn á sem varamaður þegar Stabæk skellti Strömgodset á útivelli, 1-0. Árni Gautur Arason var varamaður þegar Vålerenga burstaði Öst 7-0 og loks vann Rosenborg Byasen 8-1.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×