Sport

Guðjón neitar orðrómi

Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Notts County, þvertók í gær fyrir það að hann væri að fá írska varnarmanninn Brian O’Callaghan til liðs við félagið, en Guðjón fékk leikmanninn sem kunnugt er til liðs við sig þegar hann var við stjórnartaumana hjá Keflavík á dögunum. Heimasíða sem tengist Notts County hafði daginn áður slegið því föstu að Guðjón væri að landa leikmanninum, sem lék einnig undir stjórn hans hjá Barnsley á sínum tíma, en Guðjón sagði í viðtali á heimasíðu félagsins í gær að þessar getgátur væru „kjaftæði“. „Við unnum saman hjá Barnsley og Keflavík, en það þýðir ekki að hann sé á leið til Notts County,“ sagði Guðjón.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×