Sport

McClaren semur við Boro

Knattspyrnustjóri Middlesbrough, Steve McClaren hefur handsalað nýjan fjögurra ára samning við Steve Gibson, stjórnarformann liðsins. Mikið hefur verið rætt um McClaren sem hugsanlegan eftirmann Sven Göran Eriksson hjá enska landsliðinu, en hann segist ekkert hugsa um það á þessu stigi málsins. "Við eigum eftir að fara yfir tvö smáatriði í samningnum áður en við setjum undirskrift hans á pappírana, en við höfum gert með okkur heiðursmannasamkomulag um meginatriði samningsins og því er málið nálægt því að vera í höfn," sagði stjórnarformaðurinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×